Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Karlarnir og kúlurnar: Golf í Bakkakoti

7. september 2021 @ 9:30 - 12:00

Karlarnir og kúlurnar er verkefni á vegum Krabbameinsfélags Íslands, Framfarar og Krafts þar sem körlum sem fengið hafa krabbamein er gefið tækifæri til að styrkja sig og leika sér með því að æfa golfsveifluna í fallegu umhverfi, njóta samvista við golffélaga, læra eitthvað nýtt og/eða viðhalda fyrri færni.

Leikið verður að Bakkakoti í Mosfellsbæ þriðjudaginn 7. september 2021.

Jón Karlsson PGA golfkennari mun leiðbeina þátttakendum um réttu golfsveifluna áður en haldið er út á golfvöll (9 holur). Leikið verður þriggja manna Texas Scramble. Mæting kl. 09:30.

Tólf menn fá tækifæri til að taka þátt í þessu verkefni sér að kostnaðarlausu.

Boðið verður upp á léttar veitingar eftir hringinn.

Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040 .
Fyrstur kemur, fyrstur fær!! Við erum búin að panta gott veður!

Nánar um verkefnið.

Staðsetning

Bakkakot
Æðarhöfði 36
Mosfellsbær, Mosfellsbær 270 Iceland
+ Google Map