Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Kröftug kvennastund í Hörpu

21. október 2021 @ 17:00 - 19:30

Í tilefni af Bleikum október verður Kraftur með kröftuga kvennastund í Hörpu fimmtudaginn 21. október milli klukkan 17:00 og 19:30. Við fáum kraftmiklar konur til að deila reynslu sinni, hvert þær sækja sinn styrk og hvernig þær hafa tekist á við áskoranir hvort sem er í starfi eða persónulega lífinu.

Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og verndari Krabbameinsfélagsins, setur Kvennastundina

Fram koma:

  • Lára Guðrún Jóhönnudóttir, hvunndagshetja Bleiku slaufunnar 2021. Lára missti móður sína ung úr krabbameini og greindist svo síðar sjálf með brjóstakrabbamein. Hún hefur verið síðust ár öflugur talsmaður kvenna sem greinst hafa með brjóstakrabbamein og vakið athygli á þeim málefnum sem betur mega fara í þeim efnum.
  • G. Sigríður Ágústsdóttir, Sirrý snjódrífa, fékk þær fregnir fyrir 6 árum síðan að hún væri með ólæknandi krabbamein. Til að takast á við veikindin fór hún að stunda útivist og göngur sér til sjálfseflingar. Hún setti á laggirnar verkefnið Lífskraft sem m.a. stóð að þverun Vatnajökuls og göngu 100 kvenna upp á Hvannadalshnjúk til styrktar Líf styrktarfélagi, Krafti og krabbameinsdeild Landspítalans.
  • Anna Dröfn Sigurjónsdóttir, hefur talað opinskátt um sína baráttu við brjóstakrabbamein undir #látumdælunaganga og á Facebook síðunni Föruneyti hringsins. Á síðasta ári greindist hún með meinvörp út frá brjóstakrabbameininu sem hún hefur verið að takast á við og hefur vakið athygli fyrir viðhorf sitt til lífsins og opinskáa umræðu um krabbamein og því sem því fylgir.
  • Eliza Reid, forsetafrú og frumkvöðull, hefur tekið að sér ýmis verkefni bæði hérlendis og erlendis. Hún hefur staðið frammi fyrir ýmsum áskorunum bæði í starfi og persónulega lífinu. Eliza hefur sjálf sagt að hún sé ekki skraut forsetaembættisins heldur kona með sína eigin rödd og eigin skoðanir sem vill gera samfélaginu gagn. Fyrsta bók Elizu – Sprakkar – Kvenskörungar Íslands og hvernig þær leitast við að breyta heiminum kemur einmitt út hjá Forlaginu 11. nóvember nk.
  • Ragnheiður Guðmundsdóttir mun þá lesa upp úr nýútgefinni ljóðabók sinni – PTSD – ljóð með áfallastreitu – en ljóð hennar fæddust þegar hún var að vinna sig út úr áfallinu eftir krabbameinsveikindi. Ljóðabókin verður til sölu á viðburðinum og mun ágóðinn af þeirri sölu renna til Krafts.

Í lokinn verður boðið upp á umræður þar sem konur geta borið fram fyrirspurnir fyrir þessar kröftugu konur sem halda erindi á kvennastundinni.

Fundarstjórn: Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir, baráttukonur í réttindabaráttu hinsegin fólks og hafa m.a. halda úti fræðslu á samfélagsmiðlum Hinsegin leikanna.

Léttar bleikar veitingar verða í boði.

Þetta verður söguleg og mögnuð kvennastund. Ókeypis er á viðburðinn en takmarkað sætapláss er í boði og því mikilvægt að skrá sig sem fyrst til að tryggja sér sæti.

Við biðjum þig að skrá þig hér.

Hlökkum til að eiga kröftuga bleika kvennastund með ykkur í Hörpu í október!

Upplýsingar

Dagsetning:
21. október 2021
Tímasetning:
17:00 - 19:30
Vefsíða:
https://forms.gle/bcviU5rFg81EJ7mg7

Staðsetning

Harpa
Austurbakka 2
Reykjavík, Reykjavík 101 Iceland
+ Google Map
Sími
8687865
View Staðsetning Website