Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Kröftug strákastund á Kexinu

4. nóvember 2021 @ 20:00 - 21:30

Ert þú karlmaður og hefur greinst með krabbamein eða ert aðstandandi? Viltu heyra í jafningjum sem gengið hafa í gegnum svipaða reynslu? Þá mælum við eindregið með því að þú komir á Kex hostel fimmtudagskvöldið 4. nóvember klukkan 20:00. Skráðu þig hér. 

Við strákarnir ætlum að hittast og þú getur komið og hlustað á jafningja sem skilja þig. Það getur verið gott að heyra hvernig aðrir hafa tæklað hlutina.

Reynsluboltar koma og segja frá. Þar á meðal verða Kári Kristján Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, sem mun segja frá sinni reynslu og sjokkinu við það að greinast tvisvar með æxli í bakinu. Pétur Helgason mun segja frá sinni reynslu en konan hans greindist með brjóstakrabbamein og hélt Pétur fyrst að hann myndi geta græjað allt saman en svo fóru að koma upp óþægilegar tilfinningar, kergja og reiði. Hjörleifur Stefánsson mun segja frá sinni reynslu en hann kallar krabbameinið og tilfinningarnar sem hellast yfir mann hlandfötuna. Konan hans hefur tvívegis greinst með brjóstakrabbamein og hafa þau talað tæpitungulaust um krabbameinið og það sem því fylgir við börnin sín og aðra. Arnar Sveinn Geirsson mun segja frá því hvernig hann gróf tilfinningar sínar eftir að hann missti mömmu sína úr krabbameini og hvaða áhrif það hefur haft á hann.

Matti Osvald Stefánsson, heilsufræðingur og markþjálfi Ljóssins og Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur Krafts og Krabbameinsfélagsins, munu leiða þessa kraftmiklu strákastund.

Í lok stundarinnar munu Stebbi Jak og Hafþór Valur stíga á stokk og taka nokkur lög.

Það verður tilboð á veitingastaðnum Flatus á Kex fyrir stráka sem mæta á svæðið.

Við mælum með að þú komir á þessa snilldar strákastund – taktu endilega með þér vin því við getum ábyggilega allir speglað okkur í einhverjum af þeim reynsluboltum sem munu stíga fram og segja frá sinni reynslu. En það þarf skrá sig hér. 

Sjáumst á strákastundinni

Upplýsingar

Dagsetning:
4. nóvember 2021
Tímasetning:
20:00 - 21:30
Vefsíða:
https://forms.gle/YoNERDmiQ9e7JbrG7

Viðburðahaldari

kraftur

Staðsetning

KEX hostel
Skúlagata 28
Reykjavík, Reykjavík 101 Iceland
+ Google Map
View Staðsetning Website