Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Perlað með félagsmönnum Krafts

27. apríl 2022 @ 17:00 - 20:00

Perlað af Krafti

Nú getum við loksins komið saman og perlað … jibbí jejjj

Miðvikudaginn 27. apríl, milli 17 og 20 ætlum við hjá Krafti að safnast saman á 4. hæð í Skógarhlíð 8 og perla nýja Lífið er núna armbandið sem selt verður til styrktar félaginu samhliða átakinu okkar sem hefst um miðjan maí.

Við þurfum að safna upp í góðan lager til að anna eftirspurn þegar kemur að því að setja armbandið í sölu og þar sem armböndin okkar eru öll perluð í sjálfboðavinnu óskum við eftir að félagsmenn, vinir og vandamenn og aðrir velunnarar Krafts fjölmenni og taki þátt í þessari skemmtilegu vinnu með okkur.

Hægt er að koma hvenær sem er á milli kl. 17 – 20 og perla eins mörg armbönd og tök eru á, en endilega meldið ykkur á FB viðburðinn okkar svo við vitum við hve mörgum við megum búast

Við munum auðvitað hafa heitt á könnunni og eitthvað orkuríkt snarl á hliðarlínunni

*Ath – ekki verður hægt að kaupa nýja armbandið fyrr en það fer í sölu um miðjan maí

KOMIÐ OG PERLIÐ MEÐ KRAFTI ❤

Upplýsingar

Dagsetning:
27. apríl 2022
Tímasetning:
17:00 - 20:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/483874970145308

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website