- Hreinskilni borgar sig. Segðu frá hlutunum eins og þeir eru. Ef þú vilt ekki segja frá segðu það þá.
- Þú velur hvort þú ferð ítarlega út í að ræða hvernig krabbamein þú ert með og hvaða meðferðir eru í boði en eitt er víst að þau sem eru náin þér vilja fá upplýsingar.
- Ef þú finnur fyrir að ættingjar og vinir verði vandræðalegir þegar þeir hitta þig brjóttu þá ísinn og talaðu um veikindin því margir óttast viðbrögð þín við spurningum.
- Segðu fólki að það megi spyrja. Ef það spyr óþægilegra spurninga þá segir þú þeim það.
- Sumir velja að skrifa um reynslu sína á samfélagsmiðlum eða bloggum og vísa í það ef fólk spyr um líðan og meðferð.