Krabbamein og krabbameinsmeðferðir geta haft áhrif á líkama, útlit og sjálfsmynd. Það getur verið erfitt að aðlagast breyttum líkama og fyrir suma getur það tekið langan tíma. Það er einnig mjög einstaklingsbundið hvernig tekist er á við þetta og því ekkert eitt einfalt ráð til. Það getur því reynst vel að deila reynslu sinni með öðrum eins og til dæmis stuðningsfulltrúum í Stuðningsneti Krafts. Sumar breytingar á líkamanum eru varanlegar en aðrar ekki en eitthvað af neðangreindu gæti hent þig:
- Hármissir
- Þyngdartap eða þyngdaraukning
- Að fá ör eftir skurðaðgerðir
- Fá vökvasöfnun eða bjúg
- Fá húðslit
- Fá þurrk og særindi í slímhúð
- Fá sogæðabjúg
- Verða fyrir útlimamissi
- Missa brjóst eða eista
- Fá munnþurrk og tannskemmdir
- Fá breytta rödd
- Fá stóma