Ekki láta þessa helgi fram hjá þér fara – um er að ræða endurnærandi og ævintýralega helgi meðal jafningja dagana 28. til 30. október þar sem gist verður á Hótel Laugarhól. Ótrúlega fallegt og notalegt hótel í Bjarnarfirði á Ströndum þar sem við höfum heita sundlaug og náttúrulaug í bakgarðinum.
Helgin er bæði hugsuð fyrir krabbameinsgreinda sem og aðstandendur.
Takmarkað pláss er í boði svo um að gera að tryggja sér pláss sem fyrst með því að skrá sig hér.
Þátttökugjaldið fyrir helgina er 3500 kr. á mann og er gisting, matur og dagskrá allt innifalið.
NÁNARI DAGSKRÁ VERÐUR AUGLÝST SÍÐAR.
Nánari upplýsingar í gegnum kraftur@kraftur.org