Píla og Burger á Bullseye klukkan 19:30 miðvikudaginn 19. október
Spennandi hittingur þar sem strákarnir úr Krafti og Ljósinu ætla að hittast og skella sér í skemmtilega strákastund á Bullseye.
Við hvetjum unga karlmenn að skella sér, hitta aðra í sömu stöðu og eiga góða kvöldstund saman 🍔🎯
Strákar sem eru í endurhæfingu hjá Ljósinu geta mætt í tækjasal Ljóssins klukkan 18:00 fyrir viðburðinn til að taka vel á því með Stefáni íþróttafræðingi og skellt sér svo á skemmtilegu strákastundina í Bullseye.