17. janúar æltar AðstandendaKraftur að hafa hyggestund í fyrsta hitting ársins með smá spjalli, huggulegum veitingum og kynningu á því sem Kraftur hefur upp á að bjóða.
Áttu eða hefur þú átt ástvin sem greinst hefur með krabbamein? Ef þú ert maki, foreldri, systkini eða náinn aðstandandi getur það haft í för með sér verulegar breytingar á þínu lífi. Ýmsar spurningar geta vaknað og getur verið erfitt að vera til staðar fyrir þig og aðra á sama tíma. Það eru fleiri í þínum sporum
Aðstandendakvöldið fer fram í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8. Ávallt heitt á könnunni og boðið er upp á léttar veitingar.
Hlökkum til að sjá þig ❤
Smelltu hér til að melda þig á viðburðinn.
Umsjónarmenn hópsins eru Hrefna Björk Sigvaldadóttir félagsmaður í Krafti en hún hefur sjálf reynslu af því að vera aðstandandi og Inga Bryndís Árnadóttir starfsmaður Krafts en hún hefur reynslu af því að vera ung og greinast með æxli.
Sendu endilega fyrirspurn á kraftur@kraftur.org eða hringdu í síma 866-9600 ef þig vantar einhverjar upplýsingar en einnig er hægt er að óska eftir inngöngu í hópinn á Facebook hér.