- Þessi viðburður er liðinn.
Kröftug kvennastund – Sykursalur

Frá árinu 2000 hefur Krabbameinsfélagið staðið fyrir Bleiku slaufunni og í tilefni af því verður Kraftur, sem er aðildarfélag Krabbameinsfélagsins, með Kröftuga kvennastund í Sykursalnum 26. október milli klukkan 17:00 og 19:30.
Við fáum kraftmiklar konur til að deila reynslu sinni, hvert þær sækja sinn styrk og hvernig þær hafa tekist á við áskoranir hvort sem er í starfi eða persónulega lífinu.
Þetta verður söguleg og mögnuð kvennastund en ókeypis er á viðburðinn en takmarkað sætapláss er í boði og því mikilvægt að skrá sig sem fyrst til að tryggja sér sæti. Við biðjum þig að skrá þig hér.
Fram koma:
- Sunna Kristín Hilmarsdóttir verkefnastjóri greindist með mergæxli fyrir tveimur árum, 37 ára gömul. Hún hefur frá upphafi sagt á einlægan og opinskáan hátt frá sínum veikindum, m.a. á samfélagsmiðlum og í Kraftsblaðinu.
- Iðunn Björk Ragnarsdóttir móðir og nemi í fatasaumi sem greindist með Hodgkins eitlakrabbamein á unglingsárum. Iðunn hefur talað opinskátt um reynslu sína og áhrif krabbameinsins á vegferð hennar í lífinu.
- Berglind Häsler eigandi Havarí, starfsmaður þingflokks VG og ekkja Svavars Pétur Eysteinssonar sem lést úr krabbameini á síðasta ári. Berglind og Svavar vöktu athygli fyrir viðhorf sín til verkefnisins og opinskáa umræðu um krabbameinið og öllu því sem því fylgdi.Saga Garðarsdóttir uppistandari mun einnig stíga á stokk.
Í lokinn verður boðið upp á umræður þar sem konur geta borið fram fyrirspurnir fyrir þessar kröftugu konur sem halda erindi á kvennastundinni.
Um fundarstjórn sjá Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir, baráttukonur í réttindabaráttu hinsegin fólks sem hafa m.a. halda úti fræðslu á samfélagsmiðlum Hinsegin leikanna.
Léttar veitingar verða í boði.
Sýnum bleikan lit og sjáumst á Kröftugu kvennastundinni í Sykursalnum í bleikum október!