- Þessi viðburður er liðinn.
Lífið er núna – endurnærandi helgi

Ekki láta þessa helgi fram hjá þér fara – um er að ræða endurnærandi og ævintýralega helgi meðal jafningja dagana 10. til 12. maí þar sem gist verður á Eirð retreat. Ótrúlega fallegt og notalegt svæði við Gíslholtsvatn.
Helgin er bæði hugsuð fyrir krabbameinsgreinda sem og aðstandendur.
Takmarkað pláss er í boði svo um að gera að tryggja sér pláss sem fyrst með því að skrá sig hér.
Þátttökugjaldið fyrir helgina er 3500 kr. á mann og er gisting, matur og dagskrá allt innifalið.
Lífið er núna helgin er endurnærandi helgi fyrir félagsmenn Krafts þar sem við njótum þess að vera saman í fallegu umhverfi og byggjum okkur upp líkamlega og andlega.
NÁNARI DAGSKRÁ VERÐUR AUGLÝST SÍÐAR.
Nánari upplýsingar í gegnum kraftur@kraftur.org