- Þessi viðburður er liðinn.
AðstandendaKraftur – Paellugerð

18. APRÍL KL. 17:00 – PAELLUGERÐ MEÐ SÖSSU
Við ætlum að eiga notalega stund saman, elda saman paellu, gæða okkur á henni og spjalla saman.
Áttu eða hefur þú átt ástvin sem greinst hefur með krabbamein? Ef þú ert maki, foreldri, systkini eða náinn aðstandandi getur það haft í för með sér verulegar breytingar á þínu lífi þar sem ýmsar spurningar geta vaknað og getur verið erfitt að vera til staðar fyrir þig og aðra á sama tíma. Það eru fleiri í þínum sporum.
Hægt er að óska eftir inngöngu í hópinn á Facebook hér.
Umsjónarmaður hópsins er Guðlaug Ragnarsdóttir náms- og starfsráðgjafi sem hefur einnig reynslu af því sjálf að hafa greinst með krabbamein. Guðlaug býður einnig upp á þjónustu sem náms- og starfsráðgjafi. Nánar um það hér.