Kraftur í samstarfi við Krabbameinsfélagið á Akureyri og nágrennis stendur fyrir fræðslu og samveru fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur fimmtudaginn 14.nóvember kl. 17-18 þar sem Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir hjá Sjálfsrækt verður með erindi um sjálfsmildi í eigin garð.
Viðburðurinn er fyrir unga eintaklinga á aldirnum 18-40 ára sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur á öllum aldri. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Fyrir þetta erindi þarf að fá skráningu, skráning fer fram á kaon@krabb.is eða í síma 461-1470. Gefa þarf upp nafn, fjölda og símanúmer.
Hvetjum öll sem eiga erindi til að mæta og eiga saman stund meðal jafningja sem að skilja þig.