Þú hefur kannski aldrei lagst inn á spítala og margt ungt fólk er í sömu sporum og þú. Í flestum tilfellum þarftu að deila stofu með öðru fólki, ýmist einum eða fleirum. Þú hefur því í raun kannski ekki mikið næði eða einkalíf og þú verður að taka tillit til stofufélaga þinna.
Þegar þú undirbýrð spítaladvölina er gott að taka með sér eftirfarandi:
- Lyf og lyfjakort.
- Inniskó og/eða kósýföt, sokka og slopp.
- Koddann þinn ef þú notar að jafnaði ákveðinn kodda.
- Tölvu og síma. Spítalinn býður upp á internettengingu.
- Heyrnartól.
- Náttföt ef þú vilt vera í þínum eigin.
- Myndir af fjölskyldunni.
- Góð krem, þitt eigið sjampó og snyrtidót. Lítill spegill gæti einnig komið sér vel.
- Spil, krossgátublöð, bækur og tímarit.
- Gott er einnig að taka með sér matvæli og drykkarföng sem þú vilt og getur borðað/drukkið á milli mála.