Styrktarsjóður Krafts var stofnaður á 15 ára afmæli félagsins, þann 1. október 2014. Verndari sjóðsins er Ásta Hallgrímsdóttir, fyrrum formaður Krafts og ekkja Atla Thoroddsen sem lést úr krabbameini. Á meðan á veikindum hans stóð hélt hann úti bloggi um veikindi sín sem síðar var gefið út í bókaformi undir heitinu Dagbók rokkstjörnu. Þegar bókin var gefin út var það ósk Ástu að ágóðinn rynni til styrktarsjóðs Krafts. Þar að auki voru haldnir styrktartónleikar í Hörpu í tilefni afmælisins þar sem allur ágóði rann óskertur til sjóðsins en alls söfnuðust um tvær milljónir króna.
Styrktarsjóður Krafts er fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og hefur lent í fjárhagslegum erfiðleikum vegna veikinda sinna. Sjóðnum er ætlað að standa straum af tekjumissi sem getur hlotist af veikindunum og kostnaði sem fellur utan greiðsluþátttöku.
Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári en umsóknarfrestir eru til og með:
1.apríl
1. nóvember
Með umsókn skulu fylgja eftirtalin gögn:
- Nýlegt læknisvottorð sem endurspeglar núverandi sjúkdómsgreiningu eða stöðu veikinda.
- Skattaskýrsla síðustu tveggja almanaksára. Ef skattaskýrslur endurspegla ekki núverandi fjárhagsstöðu er mikilvægt að sýna fram á það með viðeigandi gögnum.
- Reikningar og/eða greiðsluáætlanir ef sótt er um styrk vegna útlagðs eða fyrirhugaðs kostnaðar.
Óháð úthlutunarnefnd metur umsóknir með tilliti til fyrirliggjandi gagna og stöðu sjóðsins hverju sinni. Svar við umsóknum munu berast eigi síðar en sex vikum eftir að umsóknarfrestur rennur út.
*English version
Kraftur’s support fund was established on the organisations 15th anniversary, on October 1st of 2014. The fund’s patron is Ásta Hallgrímsdóttir, former chair of Kraftur and widow of Atli Thoroddsen who passed away from cancer. During his illness, Atli wrote a blog about his experience, which was later published in book form under the title Dagbók rokkstjörnu (e. A rock star’s diary). Upon the book’s release, it was Ásta’s wish that all proceeds be donated to the Kraftur support fund. In addition, a charity concert was held in Harpa in celebration of the anniversary, with all proceeds going directly to the fund. Approximately two million ISK were raised in total.
Kraftur’s Support Fund provides assistance to young people who have been diagnosed with cancer and are experiencing financial hardship due to their illness. The fund supports applicants by helping to cover loss of income resulting from the illness as well as costs not covered by public financial assistance.
Grants are awarded twice a year and application deadlines are:
- April 1st
- November 1st
Required documents
- A recent medical certificate reflecting the current diagnosis or status of the illness.
- Tax returns from the past two calendar years. If these documents do not accurately represent the applicant’s current financial situation, additional supporting documentation must be provided.
- Invoices and/or payment plans if the application concerns incurred or expected expenses.
An independent allocation committee reviews all applications, taking into account both submitted documentation and the fund’s resources at the time. Applicants will receive a response no later than six weeks after the application deadline.