Að klífa brattann er gönguhópur fyrir alla félagsmenn Krafts, bæði þá sem greinst hafa með krabbamein og eru að koma sér út í lífið eftir veikindin sem og aðstandendur.
Atli, þjálfari FítonsKrafts og Ragnheiður Guðmundsdóttir leiða gönguhópinn. Ragnheiður hefur notað útivist og fjallgöngur sér til endurhæfingar og sjálfseflingar í veikindum sínum.
Göngurnar henta öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér göngur og íslenska náttúru og njóta þess að vera í hópi meðal jafningja.
Göngurnar eru auglýstar á vefsíðu Krafts www.kraftur.org undir viðburðir. Einnig geturðu fylgst með hópnum á Facebook.