Viðburðir í Apríl

By 29. ágúst 2025apríl 9th, 2026Fréttir

Viðburðir í Apríl🧡

Strákakraftur 15. apríl: Strákarnir skella sér á Fjórhjól með ATV Reykjavík.
Ofurkraftur 16. apríl: Kraftur býður félagsfólki að koma og upplifa djúpslakandi flot með Flothettu.
Fjölskyldukraftur 26. apríl: Kraftur býður félagsfólki á Akureyri að sjá sýningu Ávaxtakörfunnar.
Stelpukraftur 30. apríl: Vatnslitanámskeið með Guðnýju Söru myndlistakonu.
.

Við minnum ykkur á að skráning á einstaka viðburði fer nú fram í gegnum Abler. Kraftur hefur tekið upp nýtt þjónustukerfi frá Abler með það að markmiði að bæta enn þjónustu við félagsmenn. Með tilkomu þessa kerfis stefnum við að því að halda betur utan um fólkið okkar, einfalda samskiptaleiðir og gera skráningu á viðburði aðgengilegri.

Allir félagsmenn ættu nú þegar að hafa fengið greiðslubeiðni senda til sín í gegnum Abler appið fyrir félagsgjöldum Krafts fyrir næsta tímabil þar sem þeir geta valið um að fá greiðsluseðil í heimabanka eða borga með korti.

Hafðu samband við okkur á kraftur@kraftur.org eða í síma 866-9600 ef eitthvað er óljóst og við aðstoðum þig 🧡