1. GR.

Sjóðurinn ber heitið Styrktarsjóður Krafts og er eign Krafts – Stuðningsfélags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur.

The fund is named the Kraftur Support Fund and is owned by Kraftur – the Support Organisation for Young People Diagnosed with Cancer and Their Families.

2. GR.

Sjóðsfé er framlag úr sjóði Krafts sem stjórn félagsins ákvarðar hvert starfsár.

The fund’s capital consists of a contribution from Kraftur, determined annually by the organisation’s board.

3. GR.

Styrkir úr styrktarsjóðnum eru veittir samkvæmt umsókn í samræmi við reglur þessar. Hafa skal hliðsjón af umsóknum, fyrirliggjandi gögnum og fjárhagsstöðu sjóðsins hverju sinni.

Grants from the fund are allocated based on submitted applications in accordance with these rules. Applications, submitted designated forms and the financial position of the fund shall always be taken into account.

4. GR.

Tilgangur sjóðsins er að styrkja ungt fólk á aldrinum 18-45 ára sem greinst hefur með krabbamein með fjárframlagi þegar fjárhagserfiðleikar koma til vegna sjúkdómsins.

The purpose of the fund is to provide financial support to young people aged 18–45 who have been diagnosed with cancer and are experiencing financial hardship as a result of their illness.

5. GR.

Félagsfólk Krafts á aldrinum 18-45 ára sem greinst hefur með krabbamein geta sótt um styrk úr styrktarsjóðnum. Skilyrði fyrir úthlutun er að viðkomandi eigi í fjárhagserfiðleikum vegna sjúkdómsins, svo sem vegna tekjumissis, læknisþjónustu, kostnaðar vegna rannsókna eða annars afleidds kostnaðar. Úthlutunarnefnd metur styrkhæfi umsækjenda með tilliti til fyrirliggjandi gagna og stöðu sjóðsins hverju sinni. Einungis er hægt að sækja um styrk vegna kostnaðar 24 mánuði aftur í tímann. Úthlutað er úr styrktarsjóðnum tvisvar á ári, í apríl og nóvember.

Með umsókn skulu fylgja eftirtalin gögn:

  1. Nýlegt læknisvottorð sem endurspeglar núverandi sjúkdómsgreiningu eða stöðu veikinda.
  2. Skattaskýrsla síðustu tveggja almanaksára. Ef skattaskýrslur endurspegla ekki núverandi fjárhagsstöðu er mikilvægt að sýna fram á það með viðeigandi gögnum.
  3. Reikningar og/eða greiðsluáætlanir ef sótt er um styrk vegna útlagðs eða fyrirhugaðs kostnaðar.

Members of Kraftur aged 18–45 who have been diagnosed with cancer may apply for a grant from the fund. A condition for allocation is that the applicant is experiencing financial hardship due to the illness, such as loss of income, medical expenses, costs related to examinations or other related expenses. The allocation committee assesses applicants’ eligibility based on the submitted documentation and the fund’s financial status at the time. Grants may only be awarded for expenses incurred within the previous 24 months. Applications shall be submitted on the designated forms, along with required documentation, to the Kraftur office. Grants are awarded twice a year, in April and November.

The following documents must be submitted with the application:

  1. A recent medical certificate reflecting the current diagnosis or status of the illness.
  2. Tax returns for the past two calendar years. If the tax returns do not reflect the applicant’s current financial situation, this must be demonstrated with appropriate documentation.
  3. Invoices and/or payment plans if applying for reimbursement of incurred or expected expenses.

6. GR.

Stjórn Krafts skal á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund kjósa þrjá einstaklinga í úthlutunarnefnd til að annast styrkveitingar úr sjóðnum. Nefndina skulu skipa einstaklingar sem hafa góða þekkingu á málefnum krabbameinsgreindra og fjölskyldna þeirra. Um vanhæfi meðlima úthlutunarnefndar, vegna mats á einstaka umsóknum, gilda almennar reglur þar að lútandi. Úthlutunarnefnd skal rita fundargerð um ákvarðanir sínar.

At its first board meeting following the Annual General Meeting, the board of Kraftur shall elect three individuals to the allocation committee, which is responsible for allocating grants from the fund. The committee shall consist of individuals with substantial knowledge of matters concerning people diagnosed with cancer and their families. General rules on disqualification apply if a committee member is deemed ineligible to assess a specific application. The allocation committee shall maintain written records of its decisions.

7. GR.

Þjónustustjóri Krafts heldur utan um nauðsynleg gögn vegna styrkumsókna sem hann afhendir úthlutunarnefnd. Úthlutunarnefnd skal funda tvisvar á ári, svo fremi sem það liggi fyrir óafgreiddar umsóknir um styrki. Miða skal við að styrkumsókn sé afgreidd innan sex vikna frá því að umsóknarfrestur rennur út. Heimilt er að binda greiðslu styrks því skilyrði að hann renni beint til greiðslu kostnaðar umsækjanda.

The Service Manager of Kraftur collects the necessary documents for each application and provides them to the allocation committee. The allocation committee shall meet twice a year, provided that pending applications exist. Applications should be processed within six weeks of the application deadline. The payment of a grant may be subject to the condition that it is paid directly towards the applicant’s expenses, cf. Article 4.

8. GR.

Öll gögn sem Styrktarsjóði Krafts berast eru meðhöndluð sem trúnaðargögn og farið með þau sem slík hjá félaginu. Að lokinni úthlutun verður innsendum gögnum skilað, eða þeim eytt. Stjórn áskilur sér það að halda til haga kennitölu viðkomandi, nafni og upphæð styrks til að hægt sé að halda utan um úthlutanir styrkja.

All documents submitted to the Kraftur Support Fund are treated as confidential and handled accordingly. After the allocation process is completed, submitted documents will either be returned or destroyed. The board reserves the right to retain the applicant’s ID number, name, and grant amount in order to maintain necessary records of grant allocations.

Reglum síðast breytt og samþykkt af stjórn 9. mars 2026