Kraftur starfrækir ýmsa stuðningshópa þar sem einstaklingar koma reglulega saman og ræða opinskátt um veikindin og áhrif þeirra á lífið og tilveruna. Hóparnir eru undir handleiðslu fagaðila. Stuðningshópar eru starfræktir á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri.
Stuðningshóparnir eru eftirfarandi:
AðstandendaKraftur: Stuðningshópur fyrir aðstandendur sem eiga ástvin sem greinst hefur með krabbamein. Hópurinn hittist einu sinni í mánuði í húsnæði Krafts að Skógarhlíð 8