AðstandendaKraftur er vettvangur fyrir aðstandendur sem eiga ástvin sem greinst hefur með krabbamein.
Þegar einhver í kringum þig er með krabbamein er það mikið áfall og getur kallað á ýmsar spurningar. Ef þú ert maki eða náinn aðstandandi getur það haft í för með sér verulegar breytingar á þínu lífi. Þá getur verið gott að hitta aðra í sambærilegum sporum sem deila svipaðri reynslu.
Umsjón með hópnum hefur, Guðlaug Ragnarsdóttir, náms- og starfsráðgjafi sem hefur einnig reynslu af því að hafa sjálf greinst með krabbamein.
Hópurinn hittist einu sinni í mánuði alla jafna í húsnæði Krafts að Skógarhlíð 8. Frekari tímasetningu má sjá undir viðburðir.