StelpuKraftur er stuðningshópur fyrir ungar konur á aldrinum 18 til 40 ára sem greinst hafa með krabbamein.
Þegar maður er ungur og greinist með krabbamein er svo gott að geta hitt jafningja í sömu sporum, deila reynslu og fá stuðning frá hvor öðrum. Einstaklinga sem hafa skilning sem einungis fæst með því að upplifa hlutina sjálfur.
Hópurinn hittist annan hvern miðvikudag kl 19:00. Dagskrá og staðsetning má sjá undir viðburðir.
Umsjón með hópnum hefur Hulda Hjálmarsdóttir, starfsmaður Krafts og Viktoría Jensdóttir, formaður félagsins. Þær hafa báðar reynslu af því að hafa greinst ungar með krabbamein.