StrákaKraftur er stuðningshópur fyrir unga karlmenn á aldrinum 18 til 40 ára sem greinst hafa með krabbamein.
Þegar maður er ungur og greinist með krabbamein er svo gott að geta hitt jafningja í sömu sporum, deila reynslu og fá stuðning frá hvor öðrum. Einstaklinga sem hafa skilning sem einungis fæst með því að upplifa hlutina sjálfur.
Róbert Jóhannsson fréttamaður og félagsmaður í Krafti er umsjónarmaður StrákaKrafts. Hittingar eru auglýstir undir viðburðir eða á Facebook síðu hópsins.