NEPALI VIBE perluarmbönd

3.900 kr.

Takmarkað magn af NEPALI VIBE perluarmböndum eru fáanleg hjá Krafti.

Ágóði sölunnar rennur óskiptur til félagsins, en einnig hafa nepölsku konurnar sem gerðu armböndin fengið greitt fyrir þau. Armböndin eru því tvöfaldur styrkur!

Armböndin eru fáanleg í sex útgáfum. Þau koma í einni stærð, sem er ca milli 16 og 17 cm.

Armböndin koma í fallegum gjafapoka með upplýsingum um verkefnið.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , , ,

Frekari upplýsingar

NEPALI VIBE eru glerarmbönd sem eru handgerð af Nepölskum konum í Kathmandu Valley. Ágóða af sölunni nota þær t.d. í menntun barna sinna. Konurnar fá glerperlur og bómullargarn gefins frá samtökum. Hvert og eitt armband er handverk nepalskrar konu. Hún velur liti og munstur. Mikil alúð og kærleikur er lagður í hvert armband.

NEPALI VIBE armband er handgert frá konu til konu. Falleg hugsun og boðskapur.

Sjá meira um NEPALI VIBE verkefnið á Instagram og Facebook.

Þú gætir líka fílað...