Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

AðstandendaKraftur – Kósý spjall

2. nóvember 2023 @ 18:00 - 20:00

AðstandendaKraftur er stuðningshópur fyrir aðstandendur sem eiga ástvin sem greinst hefur með krabbamein. AðstandendaKraftur var stofnaður af aðstandendum fyrir aðstandendur sem stendur fyrir ýmsum viðburðum í vetur.

Guðlaug Ragnarsdóttir náms- og starfsráðgjafi og umsjónarkona hópsins tekur á móti gestum og gangandi í húsakynnum Krafts. Hægt að kíkja bara inn í einn rjúkandi bolla og taka smá spjall um allt og ekkert.

Áttu eða hefur þú átt ástvin sem greinst hefur með krabbamein? Ef þú ert maki, foreldri, systkini eða náinn aðstandandi getur það haft í för með sér verulegar breytingar á þínu lífi þar sem ýmsar spurningar geta vaknað og getur verið erfitt að vera til staðar fyrir þig og aðra á sama tíma. Það eru fleiri í þínum sporum

Umsjónarmaður hópsins er Guðlaug Ragnarsdóttir náms- og starfsráðgjafi sem hefur einnig reynslu af því sjálf að hafa greinst með krabbamein.
Hægt er að óska eftir inngöngu í hópinn á Facebook hér.

Upplýsingar

Dagsetning:
2. nóvember 2023
Tímasetning:
18:00 - 20:00

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website