Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Að klífa brattann – Úlfarsfell

24. apríl 2019 @ 17:30 - 19:00

Fyrsta ganga gönguhópsins Að klífa brattann verður miðvikudaginn, 24. apríl.

Við ætlum að skella okkur á Úlfarsfell sem er 296 metrar. Gangan hefst hjá bílastæðunum við Skógræktarsvæðið í vesturhlíðum Úlfarsfells. Þaðan er um 160 metra hækkun og er gönguleiðin á erfiðleikastigi 1. Frábær ganga til að byrja á og hlökkum við til að sjá sem flesta.

Að klífa brattann er gönguhópur sem Kraftskonurnar Ragnheiður Guðmundsdóttir og G.sigríður Ágústsdóttir leiða en þær hafa báðar notað útivist og fjallgöngur sér til endurhæfingar og sjálfseflingar í veikindum sínum. Göngurnar henta öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér göngur og íslenska náttúru og njóta þess að vera í hópi meðal jafningja.

Kraftsfélagar, fjölskyldur þeirra, börn og vinir eru hjartanlega velkomin.
Láttu okkur vita hvort þú ætlir að mæta og meldaðu þig hér.

Ragnheiður (sími: 663-9360) og Sirrý (sími: 660-4407)

Þú getur fylgst með okkur á Facebook og beðið um inngöngu í hópinn.

 

Upplýsingar

Dagsetning:
24. apríl 2019
Tímasetning:
17:30 - 19:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/407676359781544/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Úlfarsfell
Bílastæðin við skógræktarsvæðið í vesturhlíðum Úlfarsfells + Google Map