Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Aðalfundur Krafts 2021

27. apríl 2021 @ 18:00 - 19:30

Aðalfundur Krafts verður haldinn þriðjudaginn 27.apríl í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8 og hefst kl. 18:00.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Skýrsla stjórnar um starfsemi liðins starfsárs.
  3. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.
  4. Kjör formanns til tveggja ára.
  5. Kjör fjögurra manna í stjórn til tveggja ára og tveggja varamanna til eins árs.
  6. Kjör löggilts endurskoðanda reikninga félagsins. Skoðunarmenn reikninga kynntir.
  7. Ákvörðun um félagsgjald.
  8. Önnur mál.

Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa skuldlausir félagsmenn.

Óskað er eftir framboðum til stjórnar samkvæmt dagskrá. Sem fyrr segir er óskað eftir formanni, þremur aðalmönnum í stjórn og tveimur varamönnum.

Framboð skulu berast til framkvæmdastjóra á netfangið hulda@kraftur.org þar sem fram kemur nafn, kennitala og upplýsingar um viðkomandi. Framboð skulu berast eigi síðar en sun.  25.apríl.  

ATH! Vegna aðstæðna í samfélaginu verður fundurinn bæði haldinn í húsnæði Krafts meðan fjöldatakmarkanir leyfa og í gegnum streymi.
Hér þarf að skrá sig á fundinn fyrir sunnudaginn 25.apríl.
Skráning nauðsynleg! Ef félagið sér sér ekki fært um að halda aðalfund með þeim sóttvarnartakmörkunum sem eru í gildi (þær breytast eða of margir á fundi) þá áskiljum við okkur rétt til að færa fundinn alfarið í stafræna heima.

Við hvetjum alla félagsmenn til að fjölmenna á aðalfund félagsins hvort sem er í persónu eða rafrænt.

Upplýsingar

Dagsetning:
27. apríl 2021
Tímasetning:
18:00 - 19:30

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website