Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

AðstandendaKraftur – Bless 2020 … Halló 2021

26. janúar 2021 @ 17:30 - 19:00

Þriðjudaginn 26.janúar klukkan 17:30 ætlum við að koma saman í rafræna heiminu á Teams og gera upp árið 2020 og undirbúa okkur undir árið 2021.
Hverjar eru þínar óskir og væntingar til komandi árs og hvað var það sem sem stóð upp úr á síðasta ári?

Þessi hittingur verður því tileinkaður okkur, við ætlum að eiga rólega stund og kynnast betur. Öllum er velkomið að henda fram hugsunum og pælingum og saman ætlum við að gefa hvort öðru tækifæri á að deila sinni reynslu.

Við þekkjum það öll sem lendum í þessum sporum hversu ómetanlegt það getur verið að tala við aðra sem hafa verið í svipuðum sporum, AðstandendaKraftur var stofnaður af aðstandendum fyrir aðstandendur og hvetjum við alla til að mæta.

Áttu eða hefur þú átt ástvin sem greinst hefur með krabbamein? Ef þú ert maki eða náinn aðstandandi getur það haft í för með sér verulegar breytingar á þínu lífi þar sem ýmsar spurningar geta vaknað og getur verið erfitt að vera til staðar fyrir þig og aðra á sama tíma. Það eru fleiri í þínum sporum.

Komdu á opið kvöld hjá AðstandendaKrafti. Við verðum á Teams og til þess að hægt sé að senda þér hlekka á viðburðinn þurfum við emailið þitt sem þú skráir hér 
Hlökkum til að „sjá“ þig ❤

Upplýsingar

Dagsetning:
26. janúar 2021
Tímasetning:
17:30 - 19:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/207676224397544

Staðsetning

Rafrænn hittingur
Iceland

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website