Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

AðstandendaKraftur – rafrænn

13. apríl 2021 @ 20:00 - 21:30

Þriðjudaginn 13.apríl, klukkan 20:00 ætlum við að koma saman í rafræna heiminum á Teams og deila okkar reynslu og hvaða bjargráð við höfum tileinkað okkur í ferlinu.

Þessi hittingur verður því tileinkaður okkur, við ætlum að eiga rólega stund og kynnast betur. Öllum er velkomið að henda fram hugsunum og pælingum og saman ætlum við að gefa hvert öðru tækifæri á að deila reynslu.
Við þekkjum það öll sem lendum í þessum sporum hversu ómetanlegt það getur verið að tala við aðra sem hafa verið í svipuðum sporum, AðstandendaKraftur var stofnaður af aðstandendum fyrir aðstandendur og hvetjum við alla til að mæta.

Áttu eða hefur þú átt ástvin sem greinst hefur með krabbamein? Ef þú ert maki eða náinn aðstandandi getur það haft í för með sér verulegar breytingar á þínu lífi þar sem ýmsar spurningar geta vaknað og getur verið erfitt að vera til staðar fyrir þig og aðra á sama tíma. Það eru fleiri í þínum sporum. 

Umsjón með hópnum hefur Hrefna Björk Sigvaldadóttir, starfsmaður og félagsmaður í Krafti

Frekari upplýsingar eru inn á hópi AðstandendaKrafts– Hægt er að óska eftir inngöngu í hópinn hér.

Komdu á opið kvöld hjá AðstandendaKrafti. Við verðum á Teams og til þess að hægt sé að bæta þér við viðburðinn þurfum við emailið þitt sem þú skráir hér.

Upplýsingar

Dagsetning:
13. apríl 2021
Tímasetning:
20:00 - 21:30
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/1165705923879418

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website