Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Aðstandendakvöld Krafts

14. júní 2022 @ 20:00 - 22:00

AðstandendaKraftur

Þriðjudaginn 14. júní kl. 20 er opið hús fyrir aðstandendur.
Stutt fræðsla verður um þann stuðning sem er í boði fyrir aðstandendur og síðan  boðið upp á jafningjaspjall milli aðstandenda. Við þekkjum það sem höfum verið í þessum sporum hversu ómetanlegt það getur verið að tala við aðra sem hafa svipaða reynslu.

Þá mun Lóa frá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins mæta í heimsókn og fræða okkur um þá þjónustu sem Ráðgjafarþjónustan er að veita krabbameinsgreindu fólki og aðstandendum.

Aðstandendakvöldið fer fram  í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8. Ávallt heitt á könnunni og boðið er upp á léttar veitingar.

Endilega meldaðu þig á viðburðinn okkar á FB

Hlökkum til að sjá þig ❤

Áttu eða hefur þú átt ástvin sem greinst hefur með krabbamein? Ef þú ert maki, foreldri, systkini eða náinn aðstandandi getur það haft í för með sér verulegar breytingar á þínu lífi. Ýmsar spurningar geta vaknað og getur verið erfitt að vera til staðar fyrir þig og aðra á sama tíma. Það eru fleiri í þínum sporum

Umsjónarmaður hópsins er Hrefna Björk Sigvaldadóttir starfsmaður Krafts en hún hefur sjálf reynslu af því að vera aðstandandi.
Hægt er að ná í Hrefnu í síma 866-9698 eða í gegnum hrefna@kraftur.org, en einnig er hægt er að óska eftir inngöngu í hópinn á Facebook hér.

Upplýsingar

Dagsetning:
14. júní 2022
Tímasetning:
20:00 - 22:00
Vefsíða:
https://fb.me/e/2u1Vmrcvb

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website