Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Kraftmikil strákastund á Kexinu – FRESTAÐ

19. mars 2020 @ 19:30 - 21:30

Ert þú karlmaður og hefur greinst með krabbamein eða ert aðstandandi? Viltu heyra í jafningjum sem gengið hafa í gegnum svipaða reynslu? Þá mælum við eindregið með því að þú komir á Kex hostel fimmtudagskvöldið 19. mars klukkan 19:30.

Þá ætlum við strákarnir að hittast og þú getur komið og hlustað á jafningja sem skilja þig. Það getur verið gott að heyra hvernig aðrir hafa tæklað hlutina.  Matti Osvald Stefánsson, markþjálfi, og Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur Krafts, munu leiða þessa kraftmiklu strákastund. 

Einnig munu þessir reynsluboltar koma og segja frá: 

  • Kári Kristján Kristjánsson landsliðsmaður í handbolta mun segja frá sinni reynslu og sjokkinu við það að greinast tvisvar með krabbamein.
  • Skagamaðurinn Eyjólfur Rúnar Stefánsson mun segja frá sinni reynslu en hann missti konuna sína úr krabbameini og stóð eftir einn með tvær dætur.
  • Pétur Helgason á eiginkonu sem greindist með brjóstakrabbamein og er nýbúin í meðferð. Pétur hélt hann gæti annast konuna, börnin og vinnuna eins og ekkert væri en lenti svo á vegg. 
  • Arnar Sveinn Geirsson mun segja frá því hvernig hann gróf tilfinningar sínar eftir að hann missti mömmu sína úr krabbameini og hvaða áhrif það hefur haft á hann.

Nonni í Quest mun mæta á svæðið og gefa okkur ráð hvernig herramenn geta viðhaldið góðu skeggi og hári.  Við bjóðum líka upp á skemmtilegt tónlistaratriði í lok kvölds.

Það verður tilboð á veitingastaðnum Sæmundur í Sparifötunum fyrir stráka sem mæta á svæðið.

Við mælum með að þú komir á þessa snilldar strákastund – taktu endilega með þér vin því við getum ábyggilega allir speglað okkur í einhverjum af þeim reynsluboltum sem munu stíga fram og segja frá sinni reynslu.

Sjáumst á strákastundinni

Upplýsingar

Dagsetning:
19. mars 2020
Tímasetning:
19:30 - 21:30
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/2784083655012729/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

KEX hostel
Skúlagata 28
Reykjavík, Reykjavík 101 Iceland
+ Google Map
View Staðsetning Website