Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Kvöldvaka með varðeld – Krabbamein fer ekki í frí

24. júlí 2019 @ 20:00 - 22:00

Miðvikudaginn 24. júlí ætlar Kraftur að vera með kvöldvöku með varðeld við Hvaleyrarvatn undir yfirskriftinni Krabbamein fer ekki í frí. En á hverjum miðvikudegi í júlí stendur Kraftur fyrir viðburði undir yfirskriftinni Krabbamein fer ekki í frí fyrir félagsmenn sína þar sem við höfum að megin markmiði að koma saman, njóta útivistar og líðandi stundar. Viðburðirnir eru bæði fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein sem og aðstandendur og er tilvalin stund fyrir vini og fjölskyldu að koma saman. 

Við ætlum að hittast klukkan 20:00 við bílastæðið hjá Hvaleyrarvatni. Munum kveikja varðeld og vera með kósý kvöldvöku þar sem við syngjum saman og njótum líðandi stundar. Nú er um að gera að koma saman með vinum og fjölskyldu, njóta og syngja. Ekki þarf sönghæfileika til að taka þátt heldur snýst þetta um samveruna. 

Endilega meldið ykkur hér á Facebook  til að við vitum hversu margir eru að koma. 

Krabbamein fer ekki í frí

Krabbamein fer ekki í frí er vitundarvakning Krafts sem snýr að því að vekja athygli á því að þótt fólk fari í sumarfrí þá fer krabbamein ekki í frí. Oft getur verið minni starfsemi og þjónusta yfir sumartímann í heilbrigðisgeiranum og kvartar fólk oft undan takmarkaðri þjónustu. 

Kraftur hefur því tekið saman á einn stað hvernig opnun er hjá hinum ýmsu þjónustuaðilum fyrir fólk sem greinist með krabbamein og aðstandendur svo fólk viti hvert það getur leitað og hvenær þar sem við gerum okkur grein fyrir að krabbamein fer ekki í frí.

Einnig munum við standa fyrir vikulegum viðburðum í júlí fyrir félagsmenn sína þar sem markmiðið er að koma saman, stunda útivist og njóta líðandi stundar.

Upplýsingar

Dagsetning:
24. júlí 2019
Tímasetning:
20:00 - 22:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/884030981965675/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Hvaleyrarvatn
Hafnarfjörður, Iceland + Google Map
View Staðsetning Website