Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Lífið er núna dagurinn

8. febrúar

Þann 8. febrúar nk ætlar Kraftur að fagna Lífið er núna deginum sem haldinn er annan fimmtudag í febrúar ár hvert.

Tilgangur dagsins er að minna fólk á að staldra aðeins við njóta líðandi stundar og gefa sér tíma. Einnig er tilvalið að nýta daginn og láta gott af sér leiða, hrósa fólki og sjálfum sér. Nota spari- stellið og peysuna sem þú ætlaðir alltaf að nota við ákveðið tilefni. Tilvalið að  hafa leynivinaleik á vinnustöðum, pepp eða hrós dag.

Ekki bíða eftir mómentinu, búðu það til á Lífið er núna daginn.

Til að fagna þessum degi með okkur, hvetjum við fólk og vinnustaði að gera appelsínugula litnum hátt undir höfði, brjóta upp daginn, skapa minningar með sínu besta fólki og minna hvort annað á að Lífið er núna.

Við erum auðvitað með fínu Lífið er núna servíetturnar okkar sem og geggjaðan Lífið er núna borða sem hægt er að skreyta skrifstofuna með.

 

Upplýsingar

Dagsetning:
8. febrúar

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website