Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Perlað af Krafti á Akureyri

1. febrúar @ 17:00 - 20:00

Kraftur, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur ætlar að perla með Norðlendingum fimmtudaginn, 1. febrúar í Háskólanum á Akureyri í samstarfi við Krabbameinsfélagið á Akureyri og Stúdentafélag Háskólans á Akureyri. 

Perlað verður nýtt Lífið er núna armband sem verður til sölu í fjáröflunar- og vitundarvakningu Krafts sem stendur nú yfir.

Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum og perlaðu með Krafti til að styðja við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum.

  • Opið hús milli kl.17:00 og 20:00 og geta allir komið og lagt hönd á perlu í lengri eða skemmri tíma.
  • Kaffi, drykkir og kruðerí á staðnum
  • Tilvalið tækifæri til að eiga skemmtilega stund með fjölskyldu og vinum, og um leið leggja góðu málefni lið
  • Staðsetning: Háskólinn á Akureyri 

Það er um að gera að fylgjast með Facebook viðburðinn okkar þar sem við munum setja inn frekari upplýsingar. Það væri frábært ef þú gætir líka deilt viðburðinum með vinum og vandamönnum til að við getum fyllt Háskólatorgið.

Hlökkum til að sjá þig !

Upplýsingar

Dagsetning:
1. febrúar
Tímasetning:
17:00 - 20:00

Staðsetning

háskólinn Akureyri
Norðurslóð 2
Akureyri, 600 Iceland
+ Google Map
View Staðsetning Website