Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Perlað af Krafti á Akureyri

28. maí 2022 @ 13:00 - 17:00

Kraftur, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur ætlar að standa fyrir mögnuðum perluviðburði á Akureyri laugardaginn 28. maí í tilefni af vitundarvakningu félagsins.

Perlað verður nýtt Lífið er núna armband sem fer í sölu í maí en armbandið verður selt í takmörkuðu upplagi.

Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum og perlaðu með Krafti til að styðja við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum.

Endilega skráðu þig hér og kíktu á Facebook viðburðinn okkar þar sem við munum setja inn frekari upplýsingar. Það væri frábært ef þú gætir líka deilt viðburðinum með vinum og vandamönnum til að við getum fyllt Brekkuskóla.

Perlunin fer fram í Brekkuskóla og er opið hús frá klukkan 13 til 17 og er þetta tilvalið tækifæri til að eiga góða og skemmtilega stund með fjölskyldu og vinum, og um leið leggja góðu málefni lið

Hlökkum til að sjá þig !

Upplýsingar

Dagsetning:
28. maí 2022
Tímasetning:
13:00 - 17:00
Vefsíða:
https://forms.office.com/r/VBgLFjSvqC

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Brekkuskóli
Við Skólastíg
Akureyri, Akureyri 600 Iceland
+ Google Map