Kraftur, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur ætlar að perla föstudaginn 31.maí á Hvammstanga.
Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum og perlaðu með Krafti til að styðja við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum.
Það er um að gera að fylgjast með Facebook viðburðinn okkar þar sem við munum setja inn frekari upplýsingar. Það væri frábært ef þú gætir líka deilt viðburðinum með vinum og vandamönnum til að við sjáum sem flesta.