Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Perlað af Krafti í Hörpu

22. maí 2022 @ 13:00 - 17:00

Kraftur, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur ætlar að slá eigið íslandsmet í að perla armbönd sunnudaginn 22. maí í Hörpu í tilefni af vitundarvakningu félagsins.

Perlað verður nýtt Lífið er núna armband sem fer í sölu í maí en armbandið verður selt í takmörkuðu upplagi.

Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum og perlaðu með Krafti til að styðja við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum.

Endilega skráðu þig hér og kíktu á Facebook viðburðinn okkar þar sem við munum setja inn frekari upplýsingar. Það væri frábært ef þú gætir líka deilt viðburðinum með vinum og vandamönnum til að við getum fyllt Hörpu.

Lofum skemmtilegri dagskrá en hún verður auglýst síðar

Perlunin fer fram í Flóa á fyrstu hæð Hörpu og er opið hús frá klukkan 13 til 17 og er þetta tilvalið tækifæri til að eiga góða og skemmtilega stund með fjölskyldu og vinum, og um leið leggja góðu málefni lið

Hlökkum til að sjá þig !

Upplýsingar

Dagsetning:
22. maí 2022
Tímasetning:
13:00 - 17:00
Vefsíða:
https://forms.office.com/r/mnJ4ZsqLSS

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Harpa
Austurbakka 2
Reykjavík, Reykjavík 101 Iceland
+ Google Map
Sími
8687865
View Staðsetning Website