Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Perlað af Krafti á Laugarvatni og Styrktar Bingó!

4. október 2018 @ 18:00 - 22:00

Kraftur leggur leið sína austur og perlar með Laugvetningum og nágrenni fimmtudaginn 4. október kl. 18.00 – 20:00 í matsalnum í Menntaskólanum að Laugarvatni. Einnig verður haldið styrktarbingó í samstarfi við Háskólann á Hólum frá kl. 20.00-22.00.

Með því að taka þátt í viðburðinum eru þið að hjálpa okkur að standa við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum þess þar sem armböndin eru seld til styrkar félaginu.

Armböndin sem um ræðir eru í litum Krafts, appelsíngul og svört. Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo að allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.

Við hvetjum Laugvetninga og nærbyggð að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur. Öll armböndin eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband. Allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur og er hægt að kaupa armböndin líka strax á staðnum.

Þetta er skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna og tilvalið tækifæri að láta gott af sér leiða og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni!

KOMIÐ OG PERLIÐ AF KRAFTI 

Upplýsingar

Dagsetning:
4. október 2018
Tímasetning:
18:00 - 22:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/752324408443279/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Menntaskólinn að Laugarvatni
Skólatún
Laugarvatn, Laugarvatn 840 Iceland
+ Google Map
Sími
4808800
View Staðsetning Website