StelpuKraftur er stuðningshópur fyrir ungar konur á aldrinum 18 – 4o ára sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist annað hvert miðvikudagskvöld ýmist í húskynnum Krafts, Skógarhlíð 8, eða annarsstaðar.
September
Mið. 11.september – Fyrsti hittingur á Finnson Bistro kl. 19-21
Mið. 25.september – Ganga um Gróttu, fótabað og Cafe Ráðagerði kl. 19-21
Október
Mið. 9.október – Kósý í Krafti – Talnaspeki og tarotlestur kl. 17-19
Mið. 23.október – RósaDekurgufa kl. 19-21.
Nóvember
Mið. 6.nóvember – Kósý í Krafti – Betri Svefn með Dr. Erlu Björnsdóttur kl. 19:30 – 21:30.
Mið. 20.nóvember – Kósý í StelpuKrafti – kertaföndur og perl kl. 19-21.
Desember
Mið. 11.desember – Yoga þerapía í infrarauðum sal með Ingibjörgu Stefáns hjá Yoga Shala kl. 19-21.
Frekari upplýsingar um viðburði verða settar inn á FB – hóp StelpuKrafts og er hægt að óska eftir inngöngu í hópinn hér.
Umsjón með hópnum hefur Hulda Hjálmarsdóttir, starfsmaður Krafts, og Viktoría Jensdóttir, formaður félagsins. Þær hafa báðar reynslu að hafa greinst ungar með krabbamein. Hægt er að hafa samband við hana í gegnum hulda@kraftur.org eða í síma 866-9600
Þegar maður er ungur og greinist með krabbamein skiptir svo miklu máli að vita hvert maður getur leitað og maður standi ekki einn í baráttunni.