Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

StelpuKraftur – Þórsmörk

28. september 2023 @ 9:00 - 29. september 2023 @ 11:00

StelpuKraftur er stuðningshópur fyrir ungar konur á aldrinum 18 – 40 ára sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist að jafnaði annan hvern miðvikudag kl 18:00  ýmist í húskynnum Krafts, Skógarhlíð 8, eða annarsstaðar.

StelpuKrafts-ferð í Þórsmörk – Hópurinn kemur saman á Midgard Base Camp á fimmtudagsmorgun kl. 9.

Þetta verður skemmtilegur göngudagur með sirka 8-12 km langri göngu. Við viljum hafa leiðarval sveigjanlegt eftir aðstæðum og munum velja skemmtilegustu leiðina hverju sinni. Eftir göngu verður haldið til baka á Midgard Base Camp. Þar mun hópurinn gæða sér á grilluðum hamborgara og kældum bjór eða gosi. Í framhaldi er tilvalið að mýkja stirða vöðva í heitum potti og gufubaði. Þegar úthaldið er búið er lagst til hvílu í uppábúinni koju.

Skráning fer fram inn á vef Midgard Adventure og er 2000 kr skráningargjald.

Nánari upplýsingar á Facebook hóp StelpuKrafts.

Umsjón með hópnum hefur Linda Sæberg, stjórnarmeðlimur og félagsmaður í Krafti, sem hefur reynslu af því að greinast ung með krabbamein. Hægt er að hafa samband við Lindu í gegnum linda@kraftur.org eða í aðalsíma Krafts 866-9600.

Frekari upplýsingar um viðburði verða settar inn á FB – hóp StelpuKrafts   og er hægt að óska eftir inngöngu í hópinn hér.

Þegar maður er ungur og greinist með krabbamein skiptir svo miklu máli að vita hvert maður getur leitað og maður standi ekki einn í baráttunni.

Upplýsingar

Byrjar:
28. september 2023 @ 9:00
Lýkur:
29. september 2023 @ 11:00
Vefsíða:
https://midgardadventure.is/tours/thorsmerkurferd-krafts-og-midgard/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Þórsmörk
Þórsmörk
Miðhálendið, Iceland
+ Google Map