Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Strandblak – Krabbamein fer ekki í frí

3. júlí 2019 @ 17:00 - 18:30

Miðvikudaginn 3. júlí ætlar Kraftur að vera með Strandblak í Laugardalslaug og er þetta fyrsti viðburðurinn undir yfirskriftinni Krabbamein fer ekki í frí. 

Á hverjum miðvikudegi í júlí stendur Kraftur fyrir viðburði fyrir félagsmenn sína. Þar höfum við að megin markmiði að koma saman, njóta útivistar og líðandi stundar. Viðburðirnir eru bæði fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein sem og aðstandendur og er tilvalin stund fyrir vini og fjölskyldu að koma saman. 

Við ætlum að hittast klukkan 16:50 í anddyrinu á Laugardalslauginni og förum síðan saman að strandblakvöllunum inni í Laugardalslaug en vellirnir eru á bak við barnalaugina. Eftir strandblakið ætlum við að skella okkur í pottana fyrir þá sem vilja svo endilega takið með ykkur sundföt. Þú þarft ekki að kunna reglurnar í blaki eða hafa spilað áður þar sem megin markmiðið er að koma saman og gera eitthvað skemmtileg og njóta líðandi stundar. 

Endilega meldið ykkur hér á Facebook til að við vitum hversu margir eru að koma. 

Krabbamein fer ekki í frí

Krabbamein fer ekki í frí er vitundarvakning Krafts sem snýr að því að vekja athygli á því að þótt fólk fari í sumarfrí þá fer krabbamein ekki í frí. Oft getur verið minni starfsemi og þjónusta yfir sumartímann í heilbrigðisgeiranum og kvartar fólk oft undan takmarkaðri þjónustu. 

Kraftur hefur því tekið saman á einn stað hvernig opnun er hjá hinum ýmsu þjónustuaðilum fyrir fólk sem greinist með krabbamein og aðstandendur svo fólk viti hvert það getur leitað og hvenær þar sem við gerum okkur grein fyrir að krabbamein fer ekki í frí.

Einnig munum við standa fyrir vikulegum viðburðum í júlí fyrir félagsmenn sína þar sem markmiðið er að koma saman, stunda útivist og njóta líðandi stundar.

Upplýsingar

Dagsetning:
3. júlí 2019
Tímasetning:
17:00 - 18:30
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/683834075401477/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Laugardalslaugin
Sundlaugarvegur 30
Reykjavík, Reykjavík 105 Iceland
+ Google Map