Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Stuðningsfulltrúanámskeið á Akureyri – Stuðningsnetið

2. apríl 2022 @ 10:00 - 18:00

Ertu góðhjartaður reynslubolti sem vilt nýta reynslu þína öðrum til góða?

Stuðningsfulltrúanámskeið fyrir verðandi stuðningsfulltrúa í stuðningsnetinu verður haldið laugardaginn 2. apríl, frá klukkan 10:00 til 18:00 í Þjónustumiðstöð Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis Glerárgötu 34, annari hæð.

Á námskeiðinu er m.a. veitt þjálfun í samtalstækni, að deila reynslu sinni á viðeigandi hátt og að setja mörk. Ásamt því að farið verður yfir ýmis málefni sem oft fylgja krabbameinsveikindum eins og erfiðar tilfinningar, hvar má nálgast upplýsingar, aðstoð fagaðila, samskipti í fjölskyldum, að tala við börn um krabbamein og fleira.

Boðið verður upp á hádegisverð og komið verður til móts við þá sem ekki búa á Akureyri og þurfa að ferðast lengri vegalengdir til þess að komast á námskeiðið.

Námskeiðið er bæði ætlað krabbameinsgreindum og aðstandendum en mælst er til þess að liðin séu a.m.k. tvö ár frá því að meðferð lauk en hvert tilfelli er metið fyrir sig.

Umsjónarmaður námskeiðsins er Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur og umsjónarmaður stuðningsnetsins og fer skráning fram i gegnum
netfangið thorri@krabb.is og hægt að fá nánari upplýsingar í síma 866-9618. 
Þorri sálfræðingur hefur samband við umsækjendur í framhaldinu.

Upplýsingar

Dagsetning:
2. apríl 2022
Tímasetning:
10:00 - 18:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/746163623030174

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Krabbameinsfélag Akureyrar
Glerárgata 24
Akureyri, Akureyri 600 Iceland
+ Google Map
Sími
461 1470