Við förum af stað með okkar fyrsta Podcast miðvikudaginn 20. febrúar. Podcastið er unnið í samstarfi við Herbert Geirsson hjá Primatekið en Hebbi er orðinn þekktur í Podcast bransanum fyrir að vera með skemmtilega og áhugaverða þætti um ýmis málefni.
Podcast Krafts er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi þar sem félagsmenn Krafts deila sinni reynslu af krabbameini og ræða um ýmis málefni sem varða veikindin.
Fyrsti þátturinn er um tilurð, starfssemi og mikilvægi Krafts. Viðmælendur þáttarins verða: Hildur Björk Hilmarsdóttir, stofnandi, Daníel Reynisson, fyrrum formaður og Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts.
Hægt er að fylgjast með podcasti Krafts hér, inn á podcast appinu og á Spotify.