Skip to main content

Krabbamein fer ekki í frí

Kraftur stendur nú annað árið í röð fyrir vitundarvakningunni Krabbamein fer ekki í frí. Vitundarvakningin snýr að því að kynna fólki opnunartíma þjónustuaðila hjá þeim sem sinna krabbameinsgreindum og aðstandendum þar sem starfsemi og þjónusta getur oft verið minni yfir sumartímann. Þó að þjónustan sé takmarkaðri þá skiptir máli að fólk viti hvert það getur leitað læknishjálpar, ráðgjafar og stuðnings. Kraftur hefur því tekið saman opnunartíma hjá helstu þjónustuaðilum sem sinna þessum hópi.

„Við gerum okkur fyllilega grein fyrir að allir þeir sem vinna við heilbrigðisþjónustu eru að gera sitt allra besta til að sinna öllum þeim sjúklingum sem koma til þeirra á þessum miklu álagstímum. Við höfum því tekið saman opnunartíma hjá helstu aðilum til að krabbameinsgreindir og aðstandendur viti hvert þeir geta leitað og hvenær. Við teljum að því upplýstara sem fólk er því minni óvissu stendur það frammi fyrir. Þá skorum við einnig á heilbrigðisyfirvöld að bæta aðgengi og þjónustu yfir sumartímann. Heilbrigðiskerfið okkar sýndi það og sannaði það á þessum Covid tímum að það getur svo sannarlega brugðist við þegar á reynir,“ segir Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts. Kraftur vonar að þessar upplýsingar hjálpi fólki hvert það getur leitað en upplýsingum með opnunartímunum verður dreift víðsvegar um Landspítalann og á öðrum stöðum.

Kraftur mun einnig standa fyrir skemmtilegum viðburðum þrjá miðvikudaga í sumar þ.e. 8. júlí, 22. júlí og 12 ágúst undir yfirskriftinni Krabbamein fer ekki í frí. Þessir viðburðir eru fyrir félagsmenn Krafts og er þar megin markmiðið að koma saman, njóta útivistar og líðandi stundar.

Hér að neðan má sjá opnunartíma og viðburði í sumar

KRAFTUR

  • Opnunartími í júlí alla virka daga nema föstudaga frá 9 til 16 þar sem fólk getur komið og fengið ráðgjöf og stuðning.
  • Þrjá miðvikudaga í sumar verða viðburður undir kjörorðunum Krabbamein fer ekki í frí

LJÓSIÐ

  • Opið alla daga í júlí kl. 8:30-16:00
  • Í boði er endurhæfing, ráðgjöf og stuðningur
  • Sjá nánar dagskrá Ljóssins á https://ljosid.is/stundaskra/
  • Sími: 561-3770

RÁÐGJAFARÞJÓNUSTA KRABBAMEINSFÉLAGINS

  • Opið alla virka daga í júlí kl. 10:00-15:00 (nema föstudagana 17., 24. og 31. júlí)
  • Hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins fær fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess ráðgjöf og stuðning
  • Sjá nánar á https://www.krabb.is/radgjof-studningur/
  • Sími: 800 4040

KRABBAMEINSDEILDIR LANDSPÍTALANS

  • Opið alla daga vikunnar en vegna sumarleyfa starfsfólks getur verið hægari svörun og þjónusta.
  • Sími 543 6130
  • www.landspitali.is

BRJÓSTAMIÐSTÖÐ LANDSPÍTALANS

  • Sérskoðanir mánudaga 8:00-15:30 nema lokað 20. júlí til 10. Ágúst.
  • Göngudeild 10E er opin alla virka daga kl. 8:00 – 16:00
  • Sími 543-1000
  • www.landspitali.is

LEITARSTÖÐ KRABBAMEINSFÉLAGSINS

  • Lokað 6. júlí til 3. ágúst.
  • Sími 540-1919
  • www.krabb.is/leitarstod
  • Ef þú finnur fyrir einkennum bendum við þér á að leita til heimilislæknis eða bráðamötttöku Landsspítalans

AKUREYRI

ALMENN GÖNGUDEILD SJÚKRAHÚSSINS Á AKUREYRI

  • Sumaropnun 19. júní til 14. ágúst – lokað á föstudögum
  • Sími 463 0100
  • www.sak.is

KRABBAMEINSFÉLAGIÐ AKUREYRI

Ef erindið er áríðandi er hægt að hafa samband við Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins í síma 800 4040

Hér má sjá plakat með öllum þjónustuaðilum og frekari upplýsingum