Í tilefni bleiks októbers blæs Kraftur til kröftugrar Kvennastundar. Við hlökkum til að sjá sem flestar konur fimmtudaginn 15. október milli klukkan 19:30 og 21:30 í Tónabíó. Við fáum að hlýða á kraftmiklar konur deila reynslu sinni af því að greinast með krabbamein sem og að sinna aðstandendahlutverkinu. Fundarstjórn verður í höndum Birnu Rúnar Eiríksdóttur sem mun að auki kitla hláturtaugarnar. Léttar veitingar verða í boði og Kraftsbúðin verður að sjálfsögðu á svæðinu og þar verða rosalegir dílar og sem dæmi má nefna að allt skart frá Vera design verður á 40% afslætti
SKRÁÐU ÞIG HÉR OG DRAGÐU ENDILEGA VINKONU MEÐ ![]()
![]()
![]()
Hlökkum til að sjá sem flestar í bleikum klæðum!
Hér getið þið kynnt ykkur fyrirlesara kvöldsins!