Kraftur, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur ætlar að standa fyrir mögnuðum perluviðburði í Borgarnesi laugardaginn 4.júní í tilefni af vitundarvakningu félagsins.
Perlað verður nýtt Lífið er núna armband sem fór í sölu 16.maí en armbandið verður selt í takmörkuðu upplagi.
Perlunin fer fram á Landnámssetrinu og er opið hús frá klukkan 13 til 17. Þetta er tilvalið tækifæri til að eiga góða og skemmtilega stund með fjölskyldu og vinum, og um leið leggja góðu málefni lið
Endilega kíktu á Facebook viðburðinn okkar þar sem við munum setja inn frekari upplýsingar. Það væri frábært ef þú gætir líka deilt viðburðinum með vinum og vandamönnum til að við getum fyllt Landnámssetrið af góðhjörtuðum perlum.
Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum og perlaðu með Krafti til að styðja við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum.