StelpuKraftur er stuðningshópur fyrir ungar konur á aldrinum 18 – 40 ára sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist annan hvern mánudag kl. 20 ýmist í húskynnum Krafts, Skógarhlíð 8, eða annarsstaðar.
Dagskrá í ágúst
29. ágúst – Fyrsti hittingur eftir sumarfrí. Hisst verður í húsnæði Krafts Skógarhlíð 8.
Nánari upplýsingar á Facebook hóp StelpuKrafts.
Umsjón með hópnum hefur Hulda Hjálmarsdóttir, starfsmaður og félagsmaður hjá Krafti sem hefur sjálf reynslu af því að greinast ung með krabbamein. Hægt er að hafa samband við hana í gegnum hulda@kraftur.org eða í síma 866-9600
Frekari upplýsingar um viðburði verða settar inn á FB – hóp StelpuKrafts og er hægt að óska eftir inngöngu í hópinn hér.
Þegar maður er ungur og greinist með krabbamein skiptir svo miklu máli að vita hvert maður getur leitað og maður standi ekki einn í baráttunni.