Úthlutað verður úr Neyðarsjóði Krafts í apríl n.k. Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl. Með styrkumsókn skal senda eftirtalin gögn:
a. Læknisvottorð þar sem fram kemur staðfesting á sjúkdómnum og hvenær hann greindist,
b. Kvittanir og reikninga vegna læknis- og/eða lyfjakostnaðar.s.l tvö ár.
c. Skattaskýrsla síðasta almanaksárs.
Nánari upplýsingar um neyðarsjóðinn gefur Ragnheiður Davíðsdóttir, framkvæmdastjóri, í síma 866-9600 og einnig má sjá um neyðarsjóðinn hér
Umsóknir, ásamt fylgiskjölum, skulu sendar í útprentuðu formi til Krafts, Skógarhlíð 8, 105, Reykjavík.