Framleiðslugeta Krafts á Lífið er núna armböndunum hefur aukist til muna eftir að styrktarfélagið Ás bankaði upp á hjá okkur fyrr í vetur. Í dag reiðum við okkur mikið á skjólstæðinga ÁS sem perla, hnýta og pakka armböndunum okkar inn.
Ás rekur búsetukjarna og sérhæfða vinnustaði fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu. Hjá Ási starfa einstaklingar með fötlun og er markmiðið að efla og hvetja einstaklinga til sjálfstæðis og þátttöku í samfélaginu. Við hjá Krafti erum ótrúlega þakklát fyrir þetta dýrmæta samstarf við Ás og allt fólkið sem kemur að framleiðslu armbandanna.
Við hlökkum til að halda áfram þessu góða samstarfi og vonum að það verði langlíft.
Við viljum líka nýta tækifærið og benda á tvo viðburði framundan á vegum ÁS:
Markaður ÁS verður laugardaginn 21. nóvember í Ögurhvarfi 6 frá kl. 12:30–16:00.
Listasýning ÁS verður einnig yfirstandandi allan nóvember í Gallerí Listaseli í miðbæ Selfoss.