Það hefur lengi verið draumur okkar að eignast fallegar peysur sem við getum klæðst þegar félagið efnir til e.k. viðburða. Cintamani gat Krafti 10 peysur á afmælisárinu sem við erum afar þakklát fyrir. Nú eru peysurnar tilbúnar og við munum skarfa þeim á sumargrilli Krafts í fyrsta sinn. Þá hlökkum við til að nota peysurnar einnig fyrir hvatningarhópana okkar í Reykjavíkurmaraþoninu í sumar. Kraftur þakkar Prentsýn innilega fyrir þennan velvilja í garð félagsins. Á myndinni má sjá þau Gunnar og Ragnheiði í Prentsýn með eina af peysunum.