Það voru auðfúsugestir sem komuí heimsókn á skrifstofu Krafts í morgun. Hugi Sævarsson og Íris Hrund Bjarnadóttir, frá Birtingahúsinu, færðu Krafti vandaðan Canon prentara sem jafnframt er skanni. Þessi gjöf til Krafts kom í stað þess að senda jóakort til viðskiptavina fyrirtækisins. Kraftur er afar þakklátur Birtingahúsinu fyrir þessa rausnarlegu gjöf sem kemur sér einkar vel þar sem félagið hafði lengi látið sig dreyma um slíkan kjörgrip. Við sendum Birtingahúsinu okkar innilegustu þakkir og óskum þeim Huga og Írisi, ásamt öllum starfsmönnum fyrirtækisins gleðilegra jóla.